søndag den 5. oktober 2008

Nýjar myndir


Jæja þá eru komnar nýjar og gamlar myndir inn í albúmið,sumarmyndir o g berlínar ferð um síðustu helgi með Gunnari og Önnu nágrönnum okkar og vinum,var bara skemtilegt og falleg borg.
Endalaust hægt að skoða og greinilegt að týskarinn er búin að moka peningum i bæinn eftir hrun múrsins, búðir opnar til kl 2100 á laugardögum, eitthvað fyrir dömurnar, en við Gunnar skoðuðum bara pöbbana á meðan.
Nú styttist í haust frí stúlknanna byrjar þann 13 okt, ekkert svaka plan en bara huggulegt trúi ég.+
Fyrsta haust lægðin kom í nótt með golu og rigningu stólar fuku af pallinum og allt lauslegt,sennilega komin tími á að taka þetta dót inn, maður sólar sig ekki mikið meira þetta sumarið.

Já ekki má gleyma kisu, nú er hún komin til danmerkur,sóttum hana upp í Horsen á föstudagsköldið, Hún Hafdís dóttir Kristján og Ellu var svo væn að taka hana með sér í Nörrunu,

Kisa var nokkuð fljót að aðlagast er strax byrjuð að mjálma á dönsku.


Elsku vinkona okkar hún Erla lést aðfaranótt miðvikudags 1.okt. Aðeins 37 ára gömul.
Eftir 9 ára hetjulega baráttu kvaddi hún þennan heim.
Við erum sv0 þakklát að hafa fengið að eiga hana sem vinkonu og fengið innsýn í hennar líf.
Hún var alltaf svo lífsglöð og sá alltaf það góða í öllum og alltaf stutt í stríðnina hennar. Allt til enda glampaði í glettnin í fallegu augunum hennar. Hún var hagsýn og skipulögð og vissi alltaf hvað hún vildi en var alltaf tilbúin að hlusta á aðra og taka ákvarðanir út frá því.
Börnunum hennar tveimur bjó hún sem best hún gat undir framtíðina.

Við erum svo þakklát að hafa fengið að hafa hana hjá okkar í Ágúst, þegar hluti af sumaklúbbnum kom í heimsókn. Hún naut þess virkilega og brölluðum við margt saman í þessari viku sem við höfðum saman.
Þegar ung fólk deyr frá sínum nánustu, þá getur maður ekki annað en hugsað til þess hvað við erum heppin sem höfum heilsuna í lagi og heilbrigð börn, í kringum okkur.
Hættum svo að væla yfir einhveri krónu eða banka krísu,það kemur allt aftur.
Hugsum um hvort annað og njótum hvers dags.
Með hlýjum kveðjum frá Blommehaven Garðar og Sólrún.



6 kommentarer:

pallilitli sagde ...

Alveg er ég viss um að það fyrsta sem kisan lærir er: "Mojn", eða mjojn.

Anonym sagde ...

Fyrst af öllu: innlegar samúðarkveðjur vegna vinkonu ykkar.

Kisa greyið verður sennilega fljót að komast inn í dönskuna, eins og þið hin ;o)
Annars bestu kveðjur
Íris og fjölskylda

Anonym sagde ...

já, ég aftur!! Ætlaði bara að byðja ykkur um að láta ekki líða svona langt á milli pistla aftur ;o)
Kv.
ÍM

Anonym sagde ...

Takk fyrir kaffið um daginn, var að frétta að þú værir kominn í gömlu vinnuna er það rétt ? endilega koma með myndir úr vinnuni
Bið að heilsa öllum í borginni

Anonym sagde ...

Er bara að tékka hvort það sé komið eitthvað nýtt!!!

Kveðja Bloggvaktin :)

Anonym sagde ...

Sæl Sólrún og Garðar :) Við kíkjum alltaf reglulega á bloggið ykkar. Svo gaman að sjá myndir og svona. Ætla menn eitthvað að fara að kíkja í heimsókn heim á kreppuskerið? Danskar krónur alltaf velkomnar hér á landi ;) Annars er allt gott af okkur að frétta. Tómas nýorðinn 3 ára, alger ofurorkubolti eins og venjulega. Fátt sem breytist þar. Svo er Trausti orðinn rúmlega 5 mánaða. Hann er alger bolti og er stöðgut hlæjandi að öllu. Svakalega brosmildur krakki þar á ferð :) Biðjum að heilsa yfir til danaveldis og vildum auk þess votta ykkur samúð með andlát vinkonu ykkar. Hafið það sem allra best!
Bestu kveðjur,
Maja, Helgi Rúnar, Tómas Garðar og Trausti Theodór