søndag den 27. april 2008

Sláttur er hafin

Jæja svona er það nú hér í danmark,að maður er búin að slá tvisar núna með vikumillibili,já það er léttt að vera bóndi´,sem ég skrifaði síðast var ekki búið að fjárfesta í sláttuv´ðel,en nú er komin í hús splunkuný 125 kg vél sem æðir áfrám á meðan stjórnandinn nær andanum,já vöðvavél varð fyrir valinu og þið getið ímyndaði ykkur karlinn í garðinum,kannski nást myndir seinna,en ferðin er mikil og veit ekki hvað myndavélin n´ær miklum hraða.
Aldur er afstæður en ég veit ekki hvort ég sé nokkuð svo gamall,en það er alveg orðið ómulegt að sofa út eins og maður kallaði það hér í denn,upp kl 715 í morgun stokkið í bakarí og út að slá í kjölfarið,búin að þessu öllu saman o gklukkan ekki orðin 10þ
Ekki er því að neita að þessi breyting er bara mjög notaleg,þó ég hafi nú ekki verið þessi morgunsvæfi maður fyrr.en dagurinn nýtist jú meget mere.
Heima á klakanum er allt að verða vitlaust í þessum vörubílageira,best að segja sem minst,en oían er of dýr,en þessar aðgerðir eru kannski alveg réttar,en vinnumarkaðurinn hér ytra er nú heldur afslappaðari,þó þeir mótmæli en og en gang. En ég fékk nóg í minni vinnu síðasta miðvikudag þegar gamla kranadraslið sem ég hef verið með í vetur bilaði einu sinni enn,svo ég strunsaði upp á kontó ´afimmtudag og sagði upp með því sama,þá fyrst var loks hlustað á mann og mér lofað öllu fögru,en það er bara of seint,maður var fyrir löngu búin að fá nóg og aldrei sagt frá neinu eða spurði um hvort færi sniðugt að kaup þetta eða hitt,bara keypt gamalt drasl og ónothæft. Vona bara að ég losni sem fyrst,því ég get fengið vinnu hér nær sem passar miklu betur fyrir mig,fæ bíl heim alla daga plús það að ég get sofið í bílnum ef það passar betur en það var ekki í boði í gamla hróinu.
Skutumst í afmæli hjá Mercedes Bóasdóttir í þýskalandi í gær var náttúrulega stórveisla eins og þeim einum er lagið,var bara mjög notalegt,Palli fyrverandi nágranni kom hér í gær og við rákum ný dekk undir masdan hans og hann keyrði eins og nýr á eftir,hann kemur svo á eftir og kíkir á formúluna,hann heldur enn að bensinn geti eitthvað en það kemur í ljós. Hilsen úr sólinni í blommehaven ca 23 stig og fer hlýnandi, Garðar Þrándur vöðvasláttumaðurinn.

2 kommentarer:

Anonym sagde ...

jahhá til hamingju með heimilið (og sláttuvélina) ég er bara enn að bíða eftir innflutningsparrtísboðsmiða..... hihih
Kveðja frá Esbjerg
Sigga

Anonym sagde ...

Gleðilegt sumar! Er Gassi algjör massi á sláttuvélinni? hehe
Hér verðum við mössuð af snjómokstri!! Það snjóar og snjóar og snjóar og snjóar og snjóar...........................
Æ er hætt, komin með nóg af snjó
Hilsen
Íris